Gamalt baráttumál hefur verið lagt fram á Alþingi, þingskjal 123, 2016, frumvarp til laga um breytingu á lögum um 40 stunda vinnuviku. Fyrsti flutningsmaður er Róbert Marshall en allur þingflokkurinn stendur á bak við þingmannafrumvarpið.
Lagt er til að veita skuli frídaga vegna uppstigningardags og sumardagsins fyrsta næsta föstudag eftir þann dag sem þá ber upp á, nema um annan hátíðisdag sé að ræða og skal þá veita frí miðvikudaginn á undan. Beri jóladag, annan í jólum, nýársdag og 17. júní upp á helgi skuli veita frídag næsta virkan dag á eftir. Þá skuli halda 1. maí hátíðlegan sem frídag verkafólks fyrsta mánudag í maí, sbr. lög um almennan frídag vegna frídags verkafólks 1. maí.
Umræða um þessi mál er kunn svo áratugum skiptir en reglulega blossar upp umræða um að gera frí landsmanna samfelldari og skilvirkari. Í greinargerpð segir að þegar fru,mvrpið barst síðast til velferðarnefndar hafi nefndinni borist umsagnir frá ýmsum hagsmunaaðilum sem almennt tóku vel í þær tillögur sem frumvarpið hefur að geyma og það er lagt fram óbreytt.
„Áður hafa verið lagðar fram þingsályktunartillögur þar sem lagt hefur verið til að flytja það frí sem fólk hefur fengið á sumardaginn fyrsta og uppstigningardag frá þeim fimmtudegi sem daginn ber upp á og yfir á föstudag eða mánudag þar á eftir. Þá hefur málið fengið nokkuð almenna umfjöllun og m.a. hefur Rafiðnaðarsambandið beitt sér fyrir sambærilegri breytingu. Vilji þjóðarinnar hefur verið kannaður nokkrum sinnum á liðnum árum og oft verið mikið fylgi við það að breyta fyrirkomulaginu í samræmi við það sem lagt er til í frumvarpi þessu. Með frumvarpinu er ekki lagt til að helgi eða hefð viðkomandi daga sé færð, breytt eða rýrð heldur eingöngu að það frí sem þeim fylgir sé fært til hagræðis fyrir launþega, fjölskyldur þeirra og atvinnurekendur,“ segir m.a. í greinargerð með frumvarpinu.
Einnig segir: „Stakir frídagar eru á margan hátt óheppilegir á vinnustöðum. Þeir skapa óhagræði og draga úr framleiðni. Á sama hátt nýtist stakur frídagur launþegum ekki nema að nokkru leyti, með vinnudag á undan og eftir. Það fyrirkomulag sem hér er lagt til ætti því að auka möguleika launþega á að nýta það frí sem þeir fá með lengri helgi, það er fjölskylduvænna en núverandi fyrirkomulag og einnig til hagræðis fyrir atvinnurekendur.“
Lagt er til að lögin taki gildi 1. janúar 2016 og næsta ár verði þá hið fyrsta með þessu nýja fyrirkomulagi.