Forláta Jagúar og MG-bíll koma við sögu í bíladelluþættinum Kíkt í skúrinn í kvöld, en þar mun Ingvar Gissurarson, viðgerðarmaður sem hálfpartinn sérhæfir sig í viðgerðum á Breskum eðalbílum, leiða áhorfendur um skúrinn.
Ingvar segir frá þessum sérstæðu bílum sem þykja vera fáguð glæsismíði, en eins og Jói Bachmann, umsjármaður þáttarins segir, þá eru þetta ótrúlega rúmgóðir bílar þegar inn í þá er komið, en slánar eins og hann geta rétt úr sköflungnum og setið beinir í baki undir stýri.
Í þættinum verður fjallað um hjólastillingar sem eru nauðsynlegar í rekstri og viðhaldi bíla, en vel hjólastilltur bíll eyðir minna eldsneyti og dekkjum og fer betur með stýrisbúnaðinn. Það er Sigurður Magnússon í Hjólastillingum á Hamarhöfða sem leiðir okkur í sannleikann um þetta allt saman.
Í lok þáttarins rætist svo draumurinn. Jói strunsar inn á kontór sjónvarpsstjórans Sigmundar Ernis á Hringbraut, sem alltaf hefur langað að setjast undir stýri á alvöru Mustang - og það fékk hann að reyna, enda Mustang 1969 kominn á stæðið framan við stöðina - og raunar enginn slorútgáfa, heldur Ford Mustang Shelby Gt500 1969. Er ekki best að sjá bara hvernig maðurinn varð að 17 ára strák nánast á leiðinni á sveitaball í þættinum?
Kíkt í skúrinn er á dagskrá klukkan 20:30 í kvöld og endursýndur strax klukkan 22:30.