Vigdís Hauksdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson eru flutningsmenn frumvarps til laga sem lagt hefur verið fram á alþingi og mun m.a. leiða til þess að auðveldara verður að segja upp fólki sem starfar hjá ríkinu.
Frumvarpið er breyting við stjórnsýslulög og segir í greinargerð: „Tilgangur breytingarinnar er að einfalda ákvarðanatöku forstöðumanna ríkisstofnanna um upphaf, breytingar og lok starfa hjá ríkisstofnunum og ráðuneytum.“ Frumvarpið snýr að uppsagnarvernd ríkisstarfsmanna.
Vitnað er til þess að Ríkisendurskoðun hafi á undanförnum árum gefið út skýrslur um mannauðsmál ríkisins „og hefur ein megintillaga stofnunarinnar verið að hvetja til þess að fjármála- og efnahagsráðuneytið beiti sér fyrir lagabreytingum í þá veru að málsmeðferð við uppsagnir ríkisstarfsmanna verði einfölduð.“
Segir í greinargerð með frumvarpinu að rökin fyrir hinni sérstöku vernd í starfi sem ríkisstarfsmenn njóti, hafi einkum verið þau að nauðsynlegt sé að ríkisstarfsmenn geti sinnt starfsskyldum sínum án þess að þurfa að óttast það að valdhafar á hverjum tíma beiti hann þrýstingi sem kunni að leiða til þess að starfsmaður telji sig óöruggan í starfi eða komist að rangri niðurstöðu í málum til að þóknast valdhöfum hverju sinni. „Þróun undanfarinna ára er að veita ríkisstarfsmönnum sífellt meiri vernd sem felst m.a. í fjölmörgum álitum umboðsmanns Alþingis þar sem hvers kyns ákvarðanir um starfsskyldur ríkisstarfsmanna, launakjör þeirra, starfsstöð og fleira eru taldar vera stjórnvaldsákvarðanir í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Afleiðing þess er að öll ákvarðanataka sem lýtur að störfum ríkisstarfsmanna er afar þung í vöfum vegna reglna um málsmeðferð, andmælarétt og rökstuðning ákvarðana.“ Einnig segir að stjórnsýslan yrði skilvirkari ef breytingar næðu fram að ganga. Þá er reiknað með að lagabreytingin myndi skila hagræðingu í ríkisrekstri.
Vigdís Hauksdóttir hefur oft gagnrýnt ríkisstarfsmenn harðlega, t.d. hvernig þeir hafi beitt verkfallsvopni sínu til að þrýsta á kjarabætur. Vakti athygli þegar hún fullyrti að samkomulag hefði verið um að fara ekki í verkfall á meðan Vinstri stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var við völd.
Í viðtali við Morgunblaðið í dag segir Vigdís að stjórnsýslubreytingin myndi snúa einkum að starfsmönnum hjá undirstofnunum ríkisins og í ráðuneytunum. Ekki að lögreglumönnum, hjúkrunarfræðingum og þeim sem vinni á gólfinu.