Ferðamenn greiði fyrir útköll

Til skoðunar er að byrja að rukka ferðamenn í auknum mæli fyrir þjónustu björgunarsveita. Útköll hafa nær tvöfaldast á milli ára og sinntu björgunarsveitir víða um land tæplega 1400 slíkum verkefnum á síðasta ári. 

Vísir.is greinir frá. Þar er rætt við Smára Sigurðsson, formann Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem spyr hve mikið sé hægt að leggja á björgunarsveitarmenn: „Þessar sveitir hafa orðið fyrir miklum útgjaldaauka. Þó að félagarnir séu í sjálfboðavinnu þá er spurning hvort vinnuveitendur og fjölskylda séu sátt við fjarveru þeirra.\"

Útköllum hefur fjölgað gífurlega á milli ára, en í desember síðastliðnum voru slík verkefni 350 talsins. Smári telur fjölgun ferðamanna og aukinn útivistaráhuga Íslendinga spila stóran hlut, en auk þess hafi rysjótt veðurfar í vetur sett strik í reikninginn.

Möguleg lausn við fjölgun útkalla, sér í lagi á landsbyggðinni, er að rukka ferðamenn í auknum mæli fyrir þjónustu björgunarsveita. Dæmi séu um að ferðamenn láti björgunarsveitir sækja sig á hálendið án þess að hafa verið í einhvers konar hættu og nú þegar sé byrjað að rukka ferðamenn sem hafa farið inn á lokaða vegi eða fest bíla sína. Ferðamenn geta því átt von á því að verða rukkaðir í meiri mæli fyrir þjónustu björgunarsveitamanna í náinni framtíð.