Haltur leiðir blindan

Grískir ráðamenn hafa að engu samstöðu Evrópusambandsins gegn Rússlandi og funda nú með Vladimír Pútín Rússlandsforseta.  Bæði ríkin standa frammi fyrir miklum efnahagsörðugleikum, og vandséð hvernig Grikir geti grætt á auknum samskiptum við Rússa sem að auki ganga þvert á öll milliríkjasamskipti Evrópusambandsins og NATÓ.


Ríkisstjórn Alexis Tsipras á í miklum útistöðum við önnur Evrópusambandsríki um hvernig beri að leysa efnahagsvanda grísku þjóðarinnar og greiða af lánum ríkisins.  Þetta útspil virðist einungis gert til að ögra ráðamönnum í Evrópu.  Tsipras hefur gagnrýnt viðskiptaþvinganir Evrópusambandsins og Bandaríkjanna vegna íhlutunar Rússa í Úkraínu.  


Martin Schulz forseti Evrópuþingsins er ómyrkur í máli yfir heimsókn gríska forsætisráðherrans til Rússlands.  Hann segir Grikkja krefjast mikillar samstöðu frá ESB, og það sé eðlilegt að krefjast sömu samstöðu frá Grikklandi.


Þannig dýpkar deilan um efnahagsaðgerðir í Grikklandi dag frá degi, og ljóst að lausn er ekki í sjónmáli.  Grikkir hafa að auki farið fram á að Þjóðverjar borgi þeim stríðsskaðabætur vegna heimstyrjaldarinnar síðari.