Íslenska vatnið inn á kínamarkað

Íslenska vatnið er nú að ryðja sér leið inn á Kínamarkað, einn stærsta markað heims, en Jón Ólafsson vatnsútflytjandi, sem var gestur í Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld, segir ævintýri sitt á þessu sviði vera heldur betur að vinda upp á sig.

Ekkert nema þrotlaus vinna hefur skilað þessum árangri, að sögn Jóns sem herjar nú á Asíumarkað eftir að hafa komið vatni sínu vel fyrir á Bandaríkjamarkaði. Fjárfestingin í vatnsfyrirtæki hans, Icelandic Glacial, nemur nú 130 milljónum dollara, eða sem nemur 17 milljörðum íslenskra króna - og hann segist vera hvergi banginn þótt samkeppnin í þessum geira sé ofboðsleg.

\"Þegar ég byrja á einhverju verkefni gleymi ég því oft við hverja ég er að fara að keppa. Ég var alltaf að keppa við ríkið sjálft þegar ég stofnaði Bylgjuna og Tal á sínum tíma og rak svo Stöð 2 í harðri keppni við hið opinbera. En ég hugsa sjaldnast út í hvað keppinautirnn er stór, miklu fremur einbeiti ég mér bara að því hvernig ég geti gert hlutina, á hvað beri að leggja áherslu og hvernig markaðurinn bregðist við og hvar sé að finna glufuna á honum. Þetta átti heldur betur við þegar ég byrjaði í vatninu því þá reyndust keppinautarnir vera Pepsi, Coke, Nestlé - og allir stærstu drykkjarvöruframleiðendur heims. En það þýddi ekkert að hugsa um það,\" segir Jón í viðtalinu og minnir á brottfall keppinauta á markaðnum: \"Þegar við byrjuðum fyrir 10 árum voru að koma fram á sjónarsviðið um 200 ný vörumerki í vatnssölu á ári. Yfirleitt voru þau öll farin eftir árið, nema kannski tvö. Og eftir tvö ár voru þessi tvö farin líka. Þegar ég horfi á það hverjir eru lifandi í dag frá þeim tíma sem við byrjuðum okkar rekstur þá eru það bara við og Voss. Öll hin eru farin.\"  

Hann segir það enga bábilju að íslenska vatnið sé það besta í heimi: \"Ísland er náttúrlega yngsta eyja á jarðarkringlunni og þar af leiðandi eru efnin í vatninu okkar léttari og hreinni en til dæmis í Ölpunum sem eru fimmfalt eldri en bergið á Íslandi. Og svo er ph-gildi vatnsins okkar alveg einstakt miðað við margt annað vatn sem er ýmist hlutlaust eða sýrt, þannig að okkar vatn ber af.\"

Þáttinn má nálgast í heild sinni á hringbraut.is, svo og klippur úr honum á sama stað.