Guðni mundar fyrsta grillspaðann

Þátturinn Grillspaðinn hefur göngu sína á Hringbraut í kvöld klukkan 20.45, en þar er á ferðinni næsta laufléttur spjallþáttur við útigrillið þar sem saman fer gamansemi og góð ráð til að grilla betur.


Grillspaðinn verður vikulega á dagskrá næstu átta vikur, tekinn upp í glæsilegu umhveri á bökkum Ölfusár, en fyrsti gestur hans á að heita þar heimamaður enda um engan annan en Guðna Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra að ræða - og kemur ef til vill ekki á óvart að hann velur lambið á teinana. Auk þess að grilla lambafillet eins og meistaranna er siður spjallar hann á gamansaman hátt um grillkúnstir, lömbin og íslenska náttúru.


Grillspaðinn er með öðrum orðum stuttur en skemmtilegur þáttur með þekktum Íslendingum sem sýna munu listir sínar við útigrillið.  Þáttastjórnandi er Sigurður K. Kolbeinsson, sem einnig stjórnar þættinum Atvinnulífið hér á Hringbraut.


Meðal gesta í næstu þáttum verða Kristján Jóhannsson og Björgvin Halldórsson. 


Grillspaðinn er sem fyrr segir frumsýndur klukkan 21.45 í kvöld.