Píratar höfða til álfa og huldufólks

"Þetta var vikan þegar fjárkúgun komst loksins á kortið sem lífvænleg atvinnugrein á Íslandi," sagði Karl Ágúst Úlafsson í víðfrægum inngangsorðum sínum í sjónvarpsþættinum helginni á Hringbraut í gærkvöld.


Og hélt áfram eins og honum einum er lagið: "Jú, tvær athafnakonur, sem við getum eflaust litið á sem frumkvöðla á þessu sviði, sendu bréf til forsætisráðherra þjóðarinnar og kröfðu hann um nokkrar milljónir króna, annars myndu þær gera opinberar upplýsingar sem kæmu sér afar illa fyrir ráðherrann. Almenningur á Íslandi er mjög sleginn yfir þessu: Getur það hugsast að eitthvað á ferli Sigmundar Davíðs sé ennþá vandræðalegra en það sem þegar hefur komið fram og allir vita? Getur það verið? Eruði ekki að djóka í mér," spurði leikarinn með glott á vör.


Hann fór víða: "Álfar, huldufólk og dvergar eru alfarið á móti lagningu Suðurnesjalínu 2 í landi Hafnarfjarðar, og benda á að þessir hópar eigi engan fulltrúa í bæjarstjórn, sem sé vitaskuld algjörlega glórulaust."


Að öðru: "Píratar eru ennþá stærsti stjórnmálaflokkur á Íslandi, en talið er að þeir sæki aðallega fylgi sitt til álfa, huldufólks og dverga. Píratar kenna sig við skipulögð glæpasamtök, eins og fram kom á Alþingi fyrir nokkrum vikum. Nú spyrja menn sig hvort sé skárra að vera stjórnmálaflokkur sem kennir sig við skiplögð glæpasamtök eða að vera skipulögð glæpasamtök sem kenna sig við gamlan íslenskan bændaflokk," spurði Karl Ágúst í þætti sínum þar sem hann var óspar á að skipta yfir á túlkun Ingva Hrafns Jónssonar á atburðum líðandi stundar, en sá gamli kann öðrum betur að gefa fokkmerki sem kunnugt er.


Hægt er að horfa á inngangsorð Karls Ágústs í klippum hér á forsíðunni og þáttinn í heild sinni undir sjónvarpsflipanum, en gestir hans að þessu sinni voru leikararnir Brynhildur Guðjónsdóttir og Stefán Karl Stefánsson.