Ísland er enn á lista umsóknarríkja að Evrópusambandinu ásamt Albaníu, Svartfjallalandi, Serbíu, Makedóníu og Tyrklandi á opinberri vefsíðu ESB þrátt fyrir fréttir um að það hafi verið tekið af skrám. Þorsteinn Pálsson fyrrverandi forsætisráðherra og pistlahöfundur á hringbraut.is segir það brot á stjórnskipulagi hafi viðræðum verið slitið án aðkomu Alþingis.
Þetta kom fram í viðtali við Þorstein á Rás 1 í gærmorgun. Þar segir Þorsteinn einungis Alþingi geta sltið viðræðunum við Evrópusambandið og að það sé grafalvarlegt hafi ráðherra nú knúið ESB til að taka Ísland af lista sem umsóknarríki.
„Alþingi tók ákvörðun um að hefja viðræðurnar og það er stjórnskipuleg venja að þegar Alþingi tekur slíkar ákvarðanir í utanríkismálum að þá verður þeim ekki breytt með ráðherraákvörðun heldur með ákvörðun Alþingis. Það er grundvallaratriði í okkar lýðræðisskipulagi sem er verið að brjóta,“ sagði Þorsteinn á RÚV í gær.
Sé hinsvegar farið inn á opinbera vefsíðu Evrópusambandsins europa.eu, er Ísland enn á lista yfir þau ríki sem sótt hafa um aðild.