Fyrirgefur öllum en gleymir engu

Svisslendingurinn Sepp Blatter var í gær endurkjörinn forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA.  Blatter fordæmir það sem hann kallar hatursáróður Evrópska knattspyrnusambandsins gegn sér og segist fyrirgefa öllum en engu gleyma.

 

Blatter kom málshöfðun bandarískra dómstóla gegn sjö háttsettum embættismönnum FIFA mjög á óvart, en þeir eru sakaðir um mútuþægni og spillingu.

Formaður FIFA hefur sætt mikilli gagnrýni vegna málsins, en langi hefur loðað við hann orðrómur um mútuþægni.  Harðasta gagnrýninhefur verið frá Evrópu og bað Michel Platini, formaður UEFA, Blatter meðal annars um að segja af sér, og studdi mótframbjóðanda hans í embættið.

 

Blatter hefur verið forseti FIFA frá árinu 1998, og lengi verið orðaður við mútur og peningaþvætti. Hann var spurður í gærkvöldi hvort hann myndi fyrirgefa Michel Platini fyrir að krefjast afsagnar hans. Blatter sagðist fyrirgefa öllum en ekki gleyma, og að fyrri ákvarðanir um heimsmeistarakeppnri karla  í Rússlandi eftir þrjú ár og í Katar árið 2022 standi.