Smári nýr formaður landsbjargar

Smári Sigurðsson var fyrir stundu kjörinn nýr formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar á landsþingi á Ísafirði.  Smári hlaut 92 atkvæði en mótframbjóðandi hans, Margrét L. Laxdal, hlaut 89 atkvæði.  Á fimmta hundrað manns sitja þingið þar sem stefna félagsins er mótuð til næstu ára.


Smári er úr björgunarsveitinni Súlum á Akureyri en Margrét úr Slysavarnadeildinni Dalvík þannig að um grannaslag var að ræða.  Landsþingið hófst í gærkvöldi þar sem frambjóðendur grilluðu hamborgara ofan í þinggesti í Arnardal.  Það er spurning hvort frammistaða þeirra hafi haft einhver áhrif á formannskjörið.


Þingstörf hófust svo aftur í morgun með umræðuhópum þar sem rædd voru björgunarmál, slysavarnamál og unglingamál. Þegar þeirri hópavinnu lauk tók Haukur Ingi Jónasson við með vinnu að stefnumótun félagsins. Þingstörf halda svo áfram í dag og eftir að þingi lýkur verður árshátið félagsins haldin í íþróttahúsinu í kvöld.