Vigdís hauksdóttir segir að dagur b. noti undirmenn sína sem mannlega skildi

Vigdís Hauksdóttir segir að Dagur B. Eggertsson noti undirmenn sína eins og skildi til þess að verja sjálfan sig. Þetta segir hún í kjölfar ummæla Bjarna Brynjólfssonar, upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar um að verkfall Eflingar komi verst niður á þeim félagsmönnum Eflingar sem eru ekki í verkfalli.

„„Eins og ég hef sagt áður notar hann undirmenn sína sem „mannlegan skjöld“ þegar stór og erfið mál eru hjá borginni Hvers vegna er hann ekki í viðtölum í öllum miðlum vegna verkfallanna hjá Eflingu? Þvílikur aumingjaskapur …!!!“

Skrifar Vigdís og segir Dag vera kjarklausan:

„Kjarkleysi borgarstjóra er algjört. Hann kemur undirmönnum sínum sífellt í erfiða stöðu með að svara fyrir mál sem hann ber ábyrgð á sem framkvæmdastjóri Reykjavíkurborgar. Á sama tíma kvartar hann yfir því að þessir sömu undirmenn sæti gagnrýni á meðan hann sjálfur er í skjóli.“