Nýtt teymi innan þjóðkirkjunnar mun taka á öllum ofbeldismálum innan hennar

Þjóðkirkjan hefur stofnað nýtt aðgerðarteymi skipað óháðum einstaklingum, sem á að taka á öllum ofbeldismálum sem koma upp innan kirkjunnar. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Bragi Björnsson, formaður aðgerðarteymis Þjóðkirkjunnar, sagði það að hann vonaðist til að nefndin fái sem minnst að gera. Hann sagði kirkjuna sýna frumkvæði gegn ofbeldi.

Stefna gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni, ofbeldi og meðferð kynferðisbrota innan kirkjunnar var samþykkt á kirkjuþingi í mars í fyrra. Í kjölfarið var þriggja manna aðgerðarteymi skipað til að taka á slíkum málum.

„Þetta er eitt af þeim verkefnum sem maður tekur að sér þar sem maður vonast að maður hafi ekkert að gera. Við erum reiðubúin að taka við þeim fjölda sem kemur upp,“ sagði Bragi í fréttatímanum.

„Það má leggja ríka áherslu á að tilgangurinn með því að fá utanaðkomandi aðila er að sýna það í orði og á borði að það sé óháður aðili sem tekur á þessum málum. Kirkjan er búin að taka mjög skýra afstöðu gegn öllu ofbeldi.“

Heimasíða verður þá sett á laggirnar þar sem verður sérstakur hnappur til að tilkynna um ofbeldi á kirkjan.is. Þangað til verður hægt að senda ábendingar á teymið beint.
Bragi segir það meginhlutverk teymisins að styðja við þolendur. „Við gerum okkur held ég alveg grein fyrir því að við erum að fara inn í viðkvæmustu og erfiðustu málin sem koma upp í samfélaginu.“