Bera saman kinnar og rasskinnar

Björk Eiðsdóttir lét ekki kalt vor og veðurfar hafa áhrif á umfjöllunarefni sitt í þættinum Kvennaráð sem frumfluttur var í gærkvöldi heldur ræddi um hvernig hægt er að ná fallegu og hraustlegu útliti án þess að fórna húðinni í of miklu sólarljósi.  Húðlæknir ráðlagði konum að bera saman á sér kinnar og rasskinnar til að sjá hversu mikið mæddi á óvörðum líkamshlutum og hvernig best mætti varast hrukkur.  


Baldur Tumi Baldursson húðlæknir var ekki að sakfa utan af því í viðtali við Björk um það hvað gerist þegar við eldumst.  Frumurnar eldisst með okkur og það hafi að sjálfsögðu áhrif, en langstærsti ytri áhrifavaldurinn að hrukkumyndun er sólarljósið. Munurinn sjáist best með því að bera saman kinnarnar - það er rasskinnarnar og í andlitinu - því það sýni best hvað gerist þegar líkamsluti er óvarinn eins og andlitið.


Björk ræddi líka við Hafdísi Jónsdóttur í Laugum- Spa, Söndru Lárusdóttur í Heilsu-Útlit og Ernu Maríu Eiríksdóttur í Verði þinn vilji um aðferðir sem konur geta beitt til að halda góðu og hraustlegu útliti án þess að leggjast undir hnífinn eða sækja í of mikla sól.


Erna María líkti því fólki sem kann sér ekki hóf þegar kemur að sólinni við gamla leðurtösku.  Áferð húðarinnar verði í raun lík, hún verður mött og vantar gljáa sé sólböðum ofgert.  Þetta sé í raun óþarfi því hægt sé að fá frábær brúnkukrem eða brúnkuúða til að ná fallegri brúnni áferð.  Sandra og Hafdís tóku undir það, nú á tímum þyrfti enginn að fórna fallegri húð með því að eyðileggja hana í of mikilli sól.