„jafn réttur í hvívetna“

Nú verður skipað í embætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara. Fyr­ir ligg­ur um­sögn nefnd­ar um hæfni um­sækj­enda. Hrósa ber nefnd­inni fyr­ir að hafna með öllu aðferðafræði þeirr­ar nefnd­ar sem mat um­sækj­end­ur um embætti í Lands­rétti þegar hann var stofnaður. Um þetta hef ég skrifað áður og tel ekki ástæðu til að end­ur­taka nú.

Menn ættu hins veg­ar að átta sig á því að hér er skrifað eins kon­ar leik­rit, sem miðar að skip­un um­sækj­anda, sem fyr­ir­fram er búið að ákveða að skuli hljóta embættið, þó að öll­um sem til þekkja sé ljóst að sá um­sækj­andi stend­ur ekki jafn­fæt­is öðrum að hæfni.

Nefnd­in kaus að setja þrjá um­sækj­end­ur jafna í efsta sæti, tvo karla og eina konu. Kon­an verður skipuð. Hún var sett jafn­fæt­is hinum svo ráðherr­ann gæti sam­kvæmt gild­andi laga­regl­um skipað hana. Þetta var sýni­lega gert vegna kyn­ferðis um­sækj­and­ans. Hún er auðvitað hæf­ur lög­fræðing­ur, þó að karl­arn­ir standi henni greini­lega fram­ar, eins og öll­um er ljóst sem til þekkja. Það gera reynd­ar einnig fleiri um­sækj­end­ur.

Í viðtali við ráðherr­ann á mbl.is í gær (mánu­dag) var þannig haft eft­ir henni, þegar hún var spurð hvort kyn­ferði um­sækj­enda myndi hafa áhrif á ákvörðun henn­ar: „Ég hef alltaf talað fyr­ir því og mun áfram tala fyr­ir því að það sé á meðal þeirra þátta sem skuli líta til þegar skipað er í embætti eins og lög segja líka til um.“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir hef­ur vaxið veru­lega í starfi sínu sem ráðherra. Hér verður henni hins veg­ar á þegar hún svar­ar því beint út að kyn­ferði um­sækj­enda muni hafa áhrif á ákvörðun henn­ar. Í 65. gr. stjórn­ar­skrár­inn­ar er skýrt tekið fram að svona sjón­ar­mið eru and­stæð lög­um, því þar seg­ir: „Kon­ur og karl­ar skulu njóta jafns rétt­ar í hví­vetna.“

Hvað sem líður ákvæðum í lög­um um jafna stöðu og jafn­an rétt kvenna og karla, er stjórn­valds­höf­um óheim­ilt, eft­ir að um­sækj­end­ur um stöðu eru komn­ir fram, að velja á milli þeirra eft­ir kyn­ferði. Þetta felst í stjórn­ar­skrárá­kvæðinu.

Þó að ég hafi trölla­trú á hinum ný­skipaða dóms­málaráðherra þyk­ist ég sjá í hendi mér að hún muni ekki stand­ast þrýst­ing­inn úr um­hverf­inu. Hún mun loka leik­verk­inu og skipa kon­una.

Tjaldið mun svo falla.

Jón Steinar Gunnlaugsson