Karl Ágúst Úlfsson fór að venju mikinn við krufningu sína á fréttum liðinnar viku í þættinum Helgin sem frumsýndur var á Hringbraut í gærkvöldi. Þar var engum hlíft heldur dró hann ráðherra, ríkisstjórn og þjóðina alla sundur og saman í háði, enda stórfellt rof milli veruleika og skynjunar fólks á þessu landi hvort sem snertir veðurfar eða stjórnarfar.
Í upphafsorðum sínum hnykkir Karl Ágúst á þeirri staðreynd að ríkisstjórnin er tveggja ára. Það skýri ýmislegt í hennar fari. Orð Sigmundar Davíðs forsætisráðherra um að þjóðin væri haldin geðrofi þegar hún héldi að hér væri ekki allt í blóna voru dýrkeypt.
„Já, það ríkir semsagt hér á landi rof milli raunveruleikans og upplifunar okkar á raunveruleikanum. Við höfum látið ljúga því að okkur, að við höfum það ekki nógu gott. Skuldir heimilanna eru ofskynjanir og hugmyndir um launamisrétti á Íslandi eru ranghugmyndir."
„Hvar værum við ef það væri ekki að minnsta kosti einn maður sem sér hlutina í réttu ljósi?" spyr Karl Ágúst.
Karl segir það sama vera að segja um þann fjölda fólks sem stendur í þeirri meiningu að vorið hafi verið óvenju kalt, og að mai hafi ekki verið eins kaldur í 36 ár. Samkvæmt Sigmundi Davíð sé þetta alls ekki rétt - hér ríki mið-evrópskt meginlandsloftslag og að þetta sé enn eitt dæmið um það hvernig Veðurstofunni hafi tekist að ýta undir ranghugmyndir Íslendinga.
Þá sagði Karl ástæðuna fyrir því að Íslendingar hefðu ekki komist upp úr sínum riðli í Eurovision ekki vera vegna þess að framlagið hefði ekki verið nógu gott, heldur því að Evrópusambandinu hefði loksins tekist að túlka bréf Gunnars Braga utanríkisráðherra á þann veg að Íslandi vildi slíta öllum viðræðum við Eurovision.
Karl Ágúst segir ráðherra ríkisstjórnarinnar hafa fagnað velgengni verðlaunamyndarinnar Hrútar í Cannes, en ekki þó síst vegna þess að aðalleikarar hennar eru sauðfé sem gerir ekki háar launakröfur. Það liggi því fyrir að hægt verði að skera niður annað fé til íslenskrar kvikmyndagerðar. Þá hafi frumsýning Hrúta á Íslandi valdið usla því dýralæknar hafi mótmælt henni harðlega og talið það skýlaust verkfallsbrot.
Málefni FIFA voru ekki undanskilin í hárskarpri yfirferð Karls Ágústs, sem segir alþjóðaknattspyrnusambandið hafa náð nýjum hæðum og bætt árangur sinn í peningaþvætti, mútuþægni og annarri spillingu bæði með og án atrennu.
„Góð íþrótt er gulli betri var einhverntíma sagt, en samt er bæði betra eins og einhver sagði líka, " sagði Karl Ágúst um FIFA.
Þá er fylgistap stjórnarflokkanna og uppgangur Pírata í skoðunarkönnunum MMR auðskýranlegt. Þar er einfaldlega um að ræða rof milli raunveruleikans og skynjunar þeirra sem tóku þátt í könnunni.