Veturinn er greinilega að lina tök sín á landinu - og þarf ekki annað en að rýna í veðurkortin og vegi landsins til að sjá að kóngurinn sá er að koðna niður og megrast. Spáð er hæglætisvðri yfir helgina, sem er óvanalegt, því vart hefur liðið sú helgi frá því í byrjun desember að ekki hafi verið gefin út stormviðvörun og færð hafi spillst á helstu þjóðleiðum. Því er ekki að skipta þessa helgina á vorjafndægrum, einmitt þegar birta og myrkur skipta sólarhringnum jafnt á milli sín; greiðfært er um allt Suður- og Suðvestuland, sömuleiðis að mestu á Vestulandi og jafnvel víðast hvar á Vestfjörðum þó krapa gæti á stöku heiðum. Þá eru vegir á Norðulandi að mestu auðir þótt sumstaðar séu hálkublettir eða hálka. Flughált er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Óveður er við Stafá á Siglufjarðarvegi en greiðfært. Hálkublettir eru nokkuð víða á Austurlandi en hálka er á Háreksstaðaleið. Greiðfært með suðurströndinni.
útlit er fyrir að snjóa leysi næstu daga enda all miklar hitatölur í kortunum allt að tíu stigum að deginum - og enda þótt slydduélja gæti sunnan- og vestanlands í kvöld virðist blotinn ætla að hafa undirtökin í veðurlaginu næstu daga.