Karlmaður var handtekinn í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð í hádeginu í dag. Samkvæmt vitnum gekk maðurinn inn í eina kennslustofu þar og byrjaði að fróa sér fyrir framan fólk sem var inn í kennslustofunni.
Í samtali við Vísi segir Ómar Atli Sigurðsson að maðurinn hafi labbað inn í stofuna, skellt á eftir sér og byrjað að fróa sér.
„Þetta var rétt áður en tíminn byrjaði, um tuttugu mínútum áður. Það sátu nokkrar stelpur á aftasta bekk og ég sat á bekknum fyrir framan. Svo labbar maðurinn inn. Hann lokar harkalega á eftir sér, gyrðir niður um sig og byrjar að rúnka sér.“
Ómar segist svo hafa sagt manninum að koma sér út úr stofunni, en í fyrstu hafi maðurinn ekki hlustað.
„Ég stend þá upp og segi ekki neitt í nokkrar sekúndur. Þetta var furðulegt atvik. Svo segi ég honum að koma sér út en hann hlustar ekki, svo verð ég aðeins hvassari og segi honum að drulla sér út. Þá hættir hann og labbar út.“
Fjölmennt lið lögreglu mætti á staðinn og eftir stutta leit fannst maðurinn og var hann handtekinn á staðnum.