Á mánudaginn höfnuðu fulltrúar forsætisnefndar því að nefndin gæfi álit á því hvort meint kynferðisleg áreitni Ágústs Ólafar Ágústssonar hafi verið brot á siðareglum fyrir Alþingismenn.
Fyrir rúmu ári síðan setti Alþingi siðareglur um kynferðisofbeldi og áreitni innan stjórnmálanna fyrir Alþingismenn. „Meginreglan að þingmenn skuldbindi sig til þess að leggja sitt af mörkum til að skapa heilbrigt starfsumhverfi innan þings sem utan, sem sé laust við kynbundna og kynferðislega áreitni” segir í siðareglum Alþingismanna.
Í samtali við Hringbraut segir Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata og fimmti varaforseti forsætisnefndar, að það sé óumdeilt að Ágúst Ólafur hafi játað að hafa beitt konu kynferðislegt ofbeldi.
„Ári síðar komst forsætisnefnd að því að ekki verður annað ráðið en að málavextir séu óumdeildir og að Ágúst Ólafur hafi fallist á niðurstöðu trúnaðarnefndar Samfylkingarinnar þess efnis að fella hátterni hans undir kynferðislega áreitni. Ágúst Ólafur andmælti ekki þessu áliti forsætisnefndar, en samt sem áður ákváðu lang flestir í forsætisnefnd að túlka það ekki sem brot á siðareglum og bóka að fyrirliggjandi erindi gefi ekki tilefni til frekari athugunar. Einkum vegna þess að frá upphafi var ljóst að erindi gefi ekki nægilegt tilefni til frekari athugunar eða uppfyllir ekki skilyrði siðareglnanna.“ segir Jón Þór.
Jón Þór segir að þessi niðurstaða séu skelfileg skilaboð til kvenna.
„Slík málsmeðferð vekur ekki traust á að forsætisnefnd ætli að virða vilja Alþingis varðandi kynferðislega áreitni sem eru skelfileg skilaboð að senda konum og þeim sem hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni.“