Vopnin sem bárust íslensku landhelgisgæslunni frá norska hernum fyrir áramót eru enn ekki farin úr landi. Þetta kemur fram á fréttavefnum visir.is. Áður hefur hringbraut.is fjallað um ótrúleg líkindi milli vopnaviðskipta íslensku lögreglunnar og lögregluyfirvalda í Sómalíu á sama tíma.
Helen María Ólafsdóttir ráðgjafi hjá Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna UNDP var gestur Sólveigar Ólafsdóttur í fréttaskýringaþættinum Heimsljósi í síðustu viku þar sem hún greindi frá þeirri einkennilegu upplifun að fylgjast með byssumálum lögreglunnar á Íslandi á sama tíma og hún að vinda ofan af svipuðu máli í Sómalíu. Það er land sem Ísland vildi síst vilja bera sig saman við, þar sem nánast engir innviðir eru til staðar og stjórnsýsla einungis í mýflugumynd.
Helen sagði að í báðum tilfellum hafi lögregluyfirvöld efnt til vopnakaupa án þess að leggja til þess nokkrar forsendur, þarfagreiningu eða greiningu á yfirvofandi vá. Helen hnykkti á nauðsyn þess að hafa skýra og opna ferla sem varða öryggismál og að í stjórnsýslunni sé til staðar skýrt verklag þar sem farið sé eftir reglum og ákvæðum sem liggi fyrir, svo sem aðkomu alþingis og kjörinna fulltrúa í málum sem snúa að þjóðarhag.
Flutningur vopnanna til Íslands vakti mikla athygli þegar greint var frá honum á sínum tíma og í kjölfarið tilkynnti landhelgisgæslan að vopnin yrðu send aftur til Noregs við fyrsta hentugleika. En nú kemur á daginn að vopnin hafa enn ekki verið kvödd.