Samtök atvinnulífsins(SA) gagnrýna ályktun miðstjórnar Alþýðusambandsins(ASÍ) þar sem þess er krafist að flugfélagið Icelandair dragi til baka þá afarkosti sem flugliðum hefur verið settur hvað varðar hlutastörf.Flugfélagið tilkynnti í september að rúmlega hundrað flugfreyjum og -þjónum hefði verið gert að sinna fullu starfi, ellegar taka pokann sinn.
Í ályktun ASÍ um efnið, sem birt var í vikunni er ákvörðun Icelandair gagnrýnd og hún sögð í andstöðu við sátt og sameiginlegan skilning stéttarfélags flugfreyja og flugþjóna(FFÍ) sem þau segja að sé staðfestur með sérstakri bókun með kjarasamningi aðila um þetta efni.
Sjá einnig: ASÍ krefst þess að Icelandair afturkalli uppsagnir
Í ályktun SA um málið kemur fram að óhagkvæmanlegar hagræðingaraðgerðir standi fyrir dyrum í íslensku atvinnulífi til að bregðast við háum launakostnaði og erfiðri samkeppnisstöðu. Þá kemur fram að Icelandair hafi, í harðri samkeppni við erlend flugfélög, ávalt starfað af heilindum á íslenskum vinnumarkaði og virt alla kjarasamninga.
„Icelandair hefur gengið mun lengra en önnur félög í sambærilegum rekstri í þjónustu við flugvélar og öðrum rekstrarþáttum hér á landi. Aðstæður í flugrekstri eru krefjandi um þessar mundir. Eins og fram hefur komið í tilkynningum Icelandair hefur félaginu reynst nauðsynlegt að grípa til margháttaðra ráðstafana til hagræðingar og lækkunar kostnaðar og þar á meðal til uppsagna starfsmanna. Í þeim efnum hefur öllum samningum sem um slíkt gilda verið fylgt,“ segir í ályktun SA sem send var út fyrir stuttu.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/frettir/sa-icelandair-til