Kastljós var í gær helgað bankahruninu sem átti sér stað fyrir tíu árum síðan. Þar var rætt við fyrrverandi forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson og Geir Haarde. Þá voru Ólafur Þ. Harðarson, Kristrún Heimisdóttir og Gylfi Magnússon fengin í settið til að ræða hvað Íslendingar hefðu lært og hvað þeir hefðu ekki lært af hruninu. Sögðu þau að framkoma Breta hefði verið svívirðileg þegar sett voru hryðjuverkalög á landið vegna Icesave.
Miklar og fjörugar en hvassar umræður hafa átt sér stað á samskiptamiðlum eftir þáttinn og hefur gagnrýnin helst beinst að framgöngu Ólafs Ragnars og Geirs H. Haarde í Kastljósþættinum. Geir sagðist hafa verið blekktur þegar ákveðið var að lána Kaupþingi 500 milljónir evra daginn áður en neyðarlögin voru sett. Geir sagði:
„En það var minn skilningur að þetta fjármagn sem átti að fara til Kaupþings ætti að fara í að greiða úr þeim erfiðleikum sem bankinn átti við að stríða gagnvart breska fjármálaeftirlitinu. Hugmyndin var auðvitað sú að þá tækist að bjarga einum bankanum. Og þú getur gert þér í hugarlund að staðan hefði verið allt öðruvísi ef einn banki af þessum þremur stóru hefði lifað þetta allt saman af.“
Ólafur Ragnar sagðist síðan hafa farið út fyrir valdsvið sitt í Icesave-deilunni og „stigið inn á völl þar sem ekki var eðlilegt að forsetinn væri öllu jafnan,“ líkt og hann orðaði það og bætti við að fyrstu mánuðina eftir hrun hefði verið erfiðir fyrir þjóðina.
Eftir að þættinum lauk má segja að stormur hafi átt sér stað á Facebook og margir þekktir sem óþekktir Íslendingar sem hafa látið hátt í sér heyra. Við birtum hér helstu innlegg:
Gunnar Smári Egilsson
Miðað við þátt Ríkissjónvarpsins eru fréttamenn, stjórnmálamenn og álitsgjafar búnir að jafna sig á Hruninu. Skuldarar, leigjendur og láglaunafólk situr hins vegar enn fast í afleiðingum Hrunsins.
Álfheiður Ingadóttir
ÓRG hefur ekkert lært. Hann hefur í of langan tíma og allt of mörg ár komist upp með að halda einræður og skauta framhjá öllum krítískum spurningum og gagnrýni á hrokanum einum saman. Hélt uppteknum hætti í Kastljósi.
Nánar á