Theodóra Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs í Kópavogi segir að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn muni mynda meirihluta í Kópavogi. Að hennar mati er Sjálfstæðisflokkurinn samt varla stjórntækur. Hún segir umræðuna síðustu daga hafa snúist um persónur frekar en málefni og sér ekki fyrir sér marga kosti í stöðunni.
„Ég held að ég geti ekki litið á þetta öðruvísi en ég hafi fengið uppsagnarbréf frá Sjálfstæðisflokknum,“ sagði Theodóra í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Hún sagði Sjálfstæðisflokkinn vera í vanda og síðustu daga hafi verið mikið rætt um að ákveðnir einstaklingar gætu ekki starfað með Viðreisn eða með henni.
Nánar á visir.is
http://www.visir.is/g/2018180609746