Mikil spenna er vegna kosninganna í Vestmannaeyjum og á Seltjarnarnesi en á báðum þessum stöðum hefur Sjálfstæðisflokkurinn klofnað. Í báðum sveitarfélögunum hefur flokkurinn haft hreinan meirihluta og á Seltjarnarnesi hefur hann haldið meirihluta frá upphafi.
Ef meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Eyjum fellur, er viðbúið að Eyjalistinn og nýja framboðið, Fyrir Heimaey, myndi meirihluta. Þá færi Elliði Vignisson frá sem bæjarstjóri og yrði ekki einu sinni bæjarfulltrúi því hann skipar 5. Sætið á D-lista. Það yrðu mikil tíðindi því Elliði var mesti sigurvegari sveitarstjórnarkosninganna árið 2014 þegar hann leiddi lista flokksins með 72% fylgi.
Á Seltjarnarnesi klofnuðu frjálshyggjumenn út úr Sjálfstæðisflokknum til hægri og bjóða fram undir forystu Skafta Harðarsonar. Viðreisn er í samstarfi við Neslistann. Einnig býður Samfylkingin fram. Í síðustu kosningum fékk Sjálfstæðisflokkur 52% og 4 menn kjörna, Samfylking 2 og Neslistinn 1 mann.
Talið er líklegt að Samfylking haldi sínum 2 mönnum. Tapi Sjálfstæðisflokkurinn fjórða manni sínum og fái 3 menn kjörna, þá má ætla að baráttan muni standa milli Skafta og annars manns Viðreisnar/Neslistans.
Nái Skafti kjöri og Sjálfstæðisflokkurinn missi meirihlutann, þá gætu þessir tveir aðilar myndað meirihluta. Þá má gera ráð fyrir að Skafti gerði kröfu um að verða bæjarstjóri.