Ríf fjögur prósent gulltryggja mann

 

Mun minna fylgi gæti einnig dugað og reyndar allt niður í um 2,5 prósent ef atkvæði dreifast þannig.

Þetta kom fram í máli Ólafs Þ. Harðarsonar prófessors í stjórnmálafræði á Rás 2 á mánudaginn.

Sé miðað við kjörskrá og kjörsókn í síðustu borgarstjórnarkosningum þýðir þetta að framboð gæti fengið mann kjörinn með tæplega 1.500 atkvæði á bak við sig. Framboð sem fær 2.400 atkvæði er öruggt með mann í borgarstjórn.

Eitthvað hefur fjölgað á kjörskrá frá því í síðustu kosningum, en varla skeikar nema nokkrum tugum atkvæða þegar fylgistölur eru svona lágar.