Ísland er ekki eyland

Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa Lónsins og Michael Mann sendiherra ESB á Íslandi eru gestir Péturs Einarssonar í Markaðstorginu í kvöld Kl.21:30.

Grímur Sæmundsen segir að erlendar veitur hafi mikil áhrif á hvað ferðafólk gerir hér og haldi líka miklum tekjum sem skila sér aldrei til Íslands.

Michael Mann sendiherra ESB furðar sig á neikvæðri umræðunni hér á landi. Ísland telur hann mjög góðan og mikilvægan þátttakanda í innra markaðinum og Evrópusamstarfinu.