Enginn samningafundur er fyrirhugaður í kjaradeilu BHM og ríkisins fyrr en eftir helgi. Síðasti samningafundur var síðastliðinn fimmtudag. Áhrifa gætir mest á Landspítala þar sem biðlistar vegna aðgerða lengjast og hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu þar sem embættisverk svo sem giftingar og hjónabönd eru ekki framkvæmd.
Tæpur hálfur mánuður er síðan að verkfallsaðgerðir BHM hófust, og ber enn í milli. Áhrifa gætir mest á Landspítala þar sem geislafræðingar, náttúrufræðingar, lífeindafræðingar hafa lagt niður störf og biðlistar vegna nauðsynlegra aðgerða lengjast með degi hverjum. Þá hefur verkfall lögfræðinga hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu einnig víðtæk áhrif því ekki er hægt að þinglýsa kaup og sölu eigna né ganga í hjónaband eða skilja að skiptum.
Ekkert hefur þokast í samkomulagsátt, og eru forráðamenn BHM uggandi um framhaldið.