Brexit: allt að 8% samdráttur

Opinber skýrsla um áhrif BREXIT, EU Exit Analysis — Cross Whitehall Briefing, hefur verið ´lekið´ og birt á netinu. Skýrslan sem er dagsett janúar 2018 sýnir þrjár mismunandi niðurstöður vegna BREXIT. Í fyrsta lagi, ef engin samningar nást og Bretland hefur þá eingöngu WTO myndi það þýða 8% minni hagvöxt næstu 15 árin. Í öðru lagi ef samningar nást milli ESB og Bretlands þá myndi það þýða 5% minni hagvöxt. Í þriðja lagi ef Bretland myndi ná svipuðum samningi og EES, sem Theresa May hefur reyndar útilokað myndi það þýða 2% minni hagvöxt. Það hefur vakið athygli að stuðningsmenn BREXIT hafa ekki gefið út talnalegaspá um efnahagsleg áhrif BREXIT.