Guatemala er land í Mið-Ameríku. Róstursamt var í landinu á 19. öld og framan af þeirri 20. Ríktu einræðisherrar í landinu og borgarastyrjaldir voru tíðar.
Guatemala fylgir Bandaríkjunum fast eftir á alþjóðavettvangi. Mun landið þess vegna færa sendiráðið í Ísrael frá Tel Aviv til Jerúsalem.
Stjórnvöld í Guatemala árétta að Ísrael hafi verið bandamaður í sjö áratugi. Guatemala hefur í hartnær eina öld átti náin samskipti við Bandaríkin.
Fréttaskýrendur í Bandaríkjunum telja að náin tengsl við Bandaríkin ráði meiru um þessa ákvörðun en hollusta við Ísrael. Þeir telja ekki ólíklegt að fleiri hollvinir Bandaríkjanna fylgi fordæmi Guatemala.
Nánar www.bloomberg.com www.bbc.com