Saga sveins r. eyjólfssonar er stórmerkileg

[email protected]

 

Silja Aðalsteinsdóttir hefur ritað æsku-og athafnasögu Sveins R. Eyjólfssonar sem kom út fyrir skömmu. “Allt kann sá sem bíða kann” er nafn bókarinnar en Sveinn hefur haft það sem leiðarstef í lífi sínu. Bókin er vönduð og vel gerð í alla staði.

Það sætir tíðindum að Sveinn skuli stíga fram og segja sögu sína. Það er þakkarvert því hann hefur lengst af valið að vera í skugganum, maðurinn á bak við tjöldin. Þess þá heldur er forvitnilegt að lesa sögu hans því ferill hans í viðskiptum er einkar áhugaverður. Þessi bók er grundvallarrit þegar fjallað er um fjölmiðlun á Íslandi síðustu áratugina.

Fyrri hluti bókarinnar fjallar um æsku- og uppvaxtarár Sveins. Þar kemur fram að lífsbaráttan hefur verið hörð en móðir hans barðist áfram einstæð og heilsutæp með tvo syni sem hún kom báðum til manns. Um er að ræða hetjulega baráttusögu sem hefur vissulega haft mikil áhrif á Svein R. Eyjólfsson og gert hann að þeim sjálfstæða baráttumanni sem allur hans ferill í viðskiptum einkennist af.

Athafnasaga Sveins segir frá mörgu merkilegu. Þekktastur er hann væntanlega fyrir afskipti sín af síðdegisblöðunum Vísi, Dagblaðinu og DV. Hann lagði grunn að frjálsri blaðamennsku á Íslandi með útgáfu þessara blaða en fram til þess tíma höfðu flokksblöð ráðið ríkjum á dagblaðamarkaði. Áratuga samstarf Sveins og Jónasar Kristjánssonar ritstjóra hafði meiri áhrif á íslenskum dagblaðamarkaði en nokkuð annað. Þeir ruddu frjálsri og óháðri blaðamennsku brautina. Sveinn stofnaði einnig fríblaðið Fréttablaðið sem nú er langútbreiddasta dagblað á Íslandi.

Sveinn R. Eyjólfsson er hugsjónamaður sem hefur sýnt það að hann fylgir sannfæringu sinni og hræðist ekki valdið eða valdaklíkur samfélagsins þó þær séu fyrirferðarmiklar. Áhugavert er að lesa um aðkomu hans og Harðar Einarssonar félaga hans að rekstri Hafskips og Arnarflugs sem bæði börðust við ofurefli einokunarrisanna og urðu að láta í minni pokann. Þeir félagar töpuðu miklum peningum á aðild sinni að þessum tveimur félögum. Sveinn segir í bókinni að hann sjái ekki efti krónu af því. Hann hafi miklu frekar viljað fylgja sannfæringu sinni og berjast fyrir raunverulegri samkeppni og viðskiptafrelsi þó það hafi kostað einhverja fjármuni.

Mjög forvitnilegt er að lesa um afskipti stjórnmálamanna af rekstri fjölmiðlanna og hvernig hann telur að sumir þeirra hafi komið fram hefndum gagnvart sér og þeim fyrirtækjum sem hann átti aðild að. Mikið gekk á og Sveinn tapaði fyrirtækjum og eignum í miklu ölduróti sem gekk yfir. Hann lýsir því bókinni hvernig hann vann sig út úr erfiðri stöðu og komst á lygnan sjó að nýju. 

Allir áhugamenn um fjölmiðla og íslenskt atvinnulíf síðustu 50 árin ættu ekki að láta þessa merkilegu bók fram hjá sér fara.