Mikill munur er á lyfjanotkun kvenna og karla, og eins hvernig þeim farnast eftir að hafa leitað hjálpar við fíknisjúkdómum. Konur leita sér frekar hjálpar við vandamálum sínum en sjálfsvíg eru tíðari meðal karla. Þetta kom fram í þætti Bjarkar Eiðsdóttur Kvennaráð sem frumsýndur var í gærkvöldi, en þar ræddu Kristín Pálsdóttir talskona Rótarinnar og Þórgunnur Ársælsdóttir geðlæknir um muninn á körlum og konum þegar kemur að geðsjúkdómum og fíknivanda.
Rannsóknir sýna jafnt í Bandaríkjunum og á Íslandi að fleiri konur en karlar nota geðlyf, og er jafnvel talað um að tilfinningar kvenna geti verið deyfðar með ávísunum á lyf í stað þess að finna rót vanda þeirra. Þórgunnur benti á að konur eru líklegri að leita sér aðstoðar og því líklegri að fá ávísuð lyf við þeim vanda sem þær standi frammi fyrir. Hinsvegar sé tíðni sjálfsvíga hærri meðal karla.
Kristín sagði fíknivanda kvenna og karla ólíkan að eðli og að konur ættu að jafnaði erfiðara uppdráttar eftir að hafa leitað sér meðferðar. Athyglisvert er þó að færri konur leita sér meðferðar en karlar, en þó er ekki vitað hvort það sé af því þær leita sér síður hjálpar við fíknivanda en menn eða hvort þær eigi síður við slíkan vanda að stríða.
Ekki missa af upplýsandi og fræðandi þætti Kvennaráða, en hægt er að skoða allan þáttinn, eða hluta hans undir sjónvarpsflipanum eða í klippunum hér á forsíðu.