Arðurinn af auðlindinni

Hrein afkoma sjávarútvegsins á árunum 2011-2016 nam um 381 milljarði króna.

Vilhjálmur Þorsteinsson fjárfestir tók saman tölur frá alþjóðlega endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte og setti upp kökurit sem sýnir hvernig þessi arður af sjávarauðlindinni skiptist á milli eigenda fyrirtækjanna og almennings.

293 milljarðar – tæp 77 prósent – rann til hluthafa í formi arðgreiðslna og hækkunar eigin fjár fyrirtækjanna.

45,2 milljarðar – tæp tólf prósent – fór í veiðigjöld.

42,7 milljarðar – rúmlega ellefu prósent – rann í ríkissjóð sem tekjuskattur.

Þess ber að gæta, að veiðigjöld eru nú lægri en þau voru í upphafi tímabilsins, svo að hlutur þeirra í kökunni er núna ennþá minni en þarna kemur fram.

Þetta hljóta að vera athyglisverðar tölur inn í umræðu um sanngjarnan arð þjóðarinnar af auðlindum sínum.