Hringbraut sýnir í kvöld umræðuþáttinn Ránsfengur í umsjón Péturs Einarssonar, fyrrverandi forstjóra Straums. Í þættinum verða sýnd brot úr myndinni Ránsfengur sem Pétur framleiddi og sýnd var á kvikmyndahátíðinni Riff og víðar um heim. Myndin vakti mikla athygli.
Í þættinum ræðir Pétur við Sigurð G. Guðjónsson hæstaréttarlögmann og Theódóru Þorsteinsdóttir sem kemur fram í myndinni með sögu föður síns, svo og blaðamennina Hörð Ægisson og Þórð Snær Júlíusson.
Í myndinni er fjallað um Þorsteinn Theodorsson sem missti atvinnutækið sitt og fór í mál við bankann með hjálp dóttur sinnar Theodóru Þorsteinsdóttur.
Vogurnasjóðir eignuðust bankana á nokkur prósent af kröfuvirðinu en þrátt fyrir efnahagshrun og fordæmalausa kreppu fóru bankarnir að rukka lánin að fullu, oftast tvöfalda og þrefalda lánsupphæð!
Umræðan verður m.a. um hvort það verði annað hrun? Hverjir eiga vogunarsjóðina. Verða breytingar á fjármálakerfinu?
Þátturinn verður sýndur kl. 21.00 í kvöld mánudag og endursýndur kl. 23.00.