Flennifyrirsögn á forsíðu fréttablaðsins

“Greiddi of mikla skatta vegna Wintris”...var flennifyrirsögn á forsíðu Fréttablaðsins í morgun. Forsíðugreinin átti að lesast eins og einhvers konar endalok á Wintris málinu sem sýndu að Sigmundur Davið Gunnlaugsson hefði haft rétt fyrir sér allan tímann.

Eftir að hafa farið yfir það sem málið snýst um í dag er mér fullkomlega ómögulegt að skilja hvernig er hægt að komast að þessarri niðurstöðu sem fyrirsögn á forsíðu útbreiddasta dagblaðs landsins. Nema ég sé að misskilja eitthvað alveg gríðarlega. Ég vil ekki trúa því að við séum stödd í samsæri og því lykta fréttir dagsins á stóru fjölmiðlunum af því að það skorti hróplega fjölmiðlafólk sem kann að rýna í mál af þessu tagi. Ég sé ekki betur en að aðeins ein fjölmiðill, Kjarninn, hafi í alvöru skoðað málið. Þegar mál eru flókin er auðvelt að snúa út úr þeim og blekkja venjulegt fólk. Það er beinlínis eitt helsta hluverk fjölmiðla að sjá um að matreiða flókin mál á réttan og einfaldan hátt til að upplýsa fólk. Ef lýðræðið á að virka verður þetta að lagast.