Hrútar, nýjasta kvikmynd Gríms Hákonarsonar hefur verið valin til þátttöku í Un Certain Regard keppni Cannes kvikmyndahátíðarinnar í Frakklandi. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í París í morgun þar sem greint var frá þeim myndum sem taka þátt í keppninni í ár. Af um 4 þúsund myndum sem sóttu um komust aðeins 20 að og munu keppa um aðalverðlaunin.
Cannes kvikmyndahátíðin er ein allra stærsta og virtasta kvikmyndahátíð heims, svokölluð A hátíð og því er um ærinn heiður að ræða fyrir aðstandendur íslensku kvkimyndarinnar. Hatíðin fer fram frá 13. til 24. maí, en mynd Gríms var heimsfrumsýhnd á hátíðinni þessa daga.
Leikkonan heimsþekkta Isabella Rossellini er forseti dómnefndar að þessu sinni.
Hrútar fjallar um tvo bændur sem eru bræður á góðu fjárbúi í afskekktum dal norður í landi sem hafa ekki þrátt fyrir nábýlið talast við í fjóra áratugi.