Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur hjá Stakfelli segir sölu jarðarinnar í Neðri Dal í Biskupstungum verða þá stærstu til þessa gangi hún eftir.
Fasteignasalan Stakfell hefur nú gríðarstóra jörð í söluferli til kínverskra fjárfesta. Þetta er 1200 hektara jörð í Neðri Dal í Biskupstungum, næst við Geysissvæðið. Ásett verð er 1,2 milljarðar króna.
Böðvar sinnir söluferlinu. hann sagði á Þjóðbraut að gangi kaupin eftir verði þetta stærsta einstaka sala á jörð til erlendra kaupenda en enn sé óvíst með að kínverskir fjárfestar muni á endanum kaupa hana, fleiri sýni áhuga, bæði innlendir og erlendir fjárfestar. Hann segir að jarðir með laxveiðihlunnindum hafi undanfarið verið sérstaklega eftirsóttar á Norðausturlandi en með auknum ferðamannastraumi hafi glæðst áhugi erlendra kaupenda á jörðum hér á landi.