Samgöngustofa vinnur samkvæmt ákvörðun Jóns Gunnarssonar um að heimila siglingar ferjunnar Akraness milli lands og Eyja um Verzlunarmannahelgina.
Samgöngustofa segir að það sé enn álit Samgöngustofu að siglingar ferjunnar uppfylli ekki öryggiskröfur.
Ferjan er ærið hraðskreið en ekki eru til íslenskar reglur um ferjur sem eru jafn hraðskreiðar og ferjan Akranes.
Jón Gunnarsson segir skipstjórnarmenn og rekstraraðila ferjunnar beri auðvitað fulla ábyrgð og segir Jón að hann treysti þeim fullkomlega enda reynt fólk þar á ferð.
Hér skal því bætt við að lög um ráðherraábyrgð eru skýr um ábyrgð ráðherra á stjórnarframkvæmdum öllum og ákvæði almennra hegningarlaga um brot í starfi taka einnig til ráðherra.
Nánar www.ruv.is