Svavar Gestsson fyrrverandi sendiherra Íslands í Svíþjóð er með færslu á Facebook. Svavar er þar að fjalla um sænska lekamálið.
Svavar skrifar: Stóra fréttin við endurskipulagningu sænsku stjórnarinnar í dag er að forsætisráðherrann Stefan Löven telur að Sverigedemokraterne flokkur hægri popúlista - sem sumir kalla fascista - séu hluti af stjórnanadstöðunni.
Svavar Gestsson fyrrverandi sendiherra segir að stóri lærdómurinn af þessu máli sé að treysta ekki einkafyrirtækjum með upplýsingar sem varða þjóðaröryggi.
Lærdómurinn er sá að það á ekki að treysta einkafyrirtækjum fyrir staðreyndum sem varða þjóðaröryggi. Útvistun alls konar verkefna var ákveðin í tíð íhaldsstjórnarinnar í Svíþjóð. Þess vegna kom til tals að kæra fjórflokkanna sem að henni stóðu fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sænska þjóðþingsins. Þeir flokkar báru pólitíska ábyrgð á útvistuninni sem skók sænska stjórnkerfið síðustu daga. Nú er það veður gengið yfir.