Hart á móti hörðu

Ríkisstjórn Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna tók enn eitt skref í þátt átt að gera Bandaríkin aftur mun athafnasamir í þeim málum Evrópu sem mest varða hagsmuni Bandaríkjanna.

Á föstudag tilnefndi forsetinn fyrrum fastafulltrúa Bandaríkjanna hjá Atlantshafsbandlaginu (NATO) sem sérlega sendimann Bandaríkjanna í Úkraínu.

Sá heitir Kurt Volker og segir í erindisbréfi Kurt Volker að hann skuli vera oddviti Bandaríkjanna í samráði og í öllum samningaviðræðum um lausn mála til hagsbóta fyrir sameiginileg kappsmál Bandaríkjanna og Úkraínu.  

Hér kveður við annan tón en þegar Barack Hussein Obama var forseti Bandaríkjanna.

Kurt Volker mun ekki beita neinum vettlingatökum þegar hann tekur til starfa. Hann mun þrýsta á Úkraníu sem og á Rússland um að virða og uppfylla öll skilyrði Minsk samkomulagsins.

Dondal J. Trump hefur auk þess tekið undir hugmyndir um að skoða beri með opnum hug að bjóða Úkraínu aðild að NATO.

Skilaboð Bandaríkjanna eru skýr.

Þau láti sig varða um Evrópumál út frá hagsmunum Bandaríkjanna hvað svo sem NATO þjóðir og ESB þjóðir meina.  

Nánars www.russia-insider.com  www.foxnews.com

 

[email protected]