Karl ágúst tekur saman vikuna

Karl Ágúst Úlfsson tekur saman vikuna eftir páska í þættinum Helgin á Hringbraut og fær til sín Andra Snæ Magnason og Björn Hlyn Haraldsson.


Þetta var vikan þegar hæstiréttur varð uppvís að því að fara Ólavillt. Það kom sem sagt á daginn að sá Óli sem dæmdur var í fangelsi fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun í Al Thani málinu var alls ekki sá Óli sem átti aðild að málinu, og símtalið sem vitnað er í í gögnum málsins var símtal Óla ræstitæknis hjá Kaupþingi sem hringdi í Dominos til að panta pizzu og sjeik. Málið er því allt á misskilningi byggt og Al Thani reyndst vera vera eigandi sólbekkjastofu í Krummahólum - kallaður Alli tanaði. 


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra vill láta byggja við Alþingishúsið samkvæmt teikningu Guðjóns Samúelssonar frá 1916. Guðjón mun vera í sjöunda himni yfir þessum áformum enda er talið að hann hafi aðgang að færustu arkítektum mannkynssögunnar þar sem hann er staddur núna. Nú stendur hins vegar yfir leit að framliðnum verkfræðingi sem ráði við burðarþols- og lagnateikningar í þessu verkefni. Sigmundur mun einnig vera í beinu miðilssambandi við Jónas frá Hriflu, sem mun leysa Sigmund af þegar ástæða þykir til. 


Bjarni Benediktsson er staddur í Flórída þessa dagana, þar sem hann er að leita að íslenskum skattsvikurum sem hægt væri að gefa upp sakir. Bandalag háskólamanna hefur sett fram þá byltingarkenndu hugmynd í kjarabaráttu sinni að menntun verði metin til launa, en eins og kunnugt er hafa prófgráður yfirleitt komið til lækkunar á launum á Íslandi. Hvað dettur mönnum í hug næst? Að fara að borga listamönnum laun?


Frosti Sigurjónsson skilaði skýrslu um íslenska peningakerfið á ensku. Frosti, eða Frosty the showman, eins og hann kallar sig í skýrslunni bendir á að íslenska Júróvisjónlagið sé sungið á ensku án þess að nokkur maður kvarti yfir því og því skyldu ekki samskipti í íslenska stjórnkerfinu líka fara fram á ensku? Nú er spurning hvort við værum ekki löngu búin að fá nýja stjórnarskrá ef menn hefðu bara haft vit á því að hafa hana á ensku. Það er meira kúl.


Horfðu á klippu úr þættinum Helgin hér: 


Horfðu á þáttin Helgin hér: