Löggæslumál í sambandslýðveldinu Þýskalandi eru í höndum hvers og eins sambandslands. Stefnumóri ríkisoddvita G20 ríkjanna í Hamborg vakti meiri athygli fjölmiðla sökum óláta á stöku stað í borginni en stefnmótið sjálft. Borgarstjóri Hamborgar er sósíal demókratinn (SDU) Olaf Scholz sem að mati stjórnmálaskýrenda er framtíðar leiðtogi þýskra sósíaldemókrata. Réði hann öllu um löggæslu á stefnumótinu. Sú löggæsla fór fram af slíkri einbeittni að athygli vakti víða um veröld. Olaf Scholz á því í vök að verjast. Krafist er afsagnar hans sem ábyrgðarmanns þessarar einbeittu löggæslu.
Fari svo að hann láti embætti borgarstjóra missir flokkur sósíaldemókrata (SDU) öflugan liðsmann í forsytusveit flokksins. Stjórnmálaskýrendur kalla þetta jókertölur í pólitískum lottóvinningi Angelu Merkel leiðtoga kristilegra demókrata (CDU). Hún var gestgjafi ríkisoddvitanna á stefnumótinu en Olaf Schols sá um að halda uppi röð og reglu í borgini. Angela er hetja stefnumótsins en Olaf er blóraböggull þess.
Hamborg er fæðingarbær Angelu Merkel en þar fæddist hún árið 1954. Þaðan fluttusit hún til Þýska alþýðulýðveldisins kornung. Hamborg er borgríki og er næstminnsta sambandslandið í Þýskalandi eða eini 755 ferkílómetrar. Hamborg er hins vegar næst fjölmennasta borg landsins með tæpar tvær milljónir íbúa. En borgin er og verður höfuðvígi jafnaðarmanna og þeir láta Olaf Scholz ekki verða sektarlamb.