Hafdís Gunnarsdóttir varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Norð-vesturkjördæmið vill að íbúar Vestfjarða fái að njóta vafans þegar kemur að uppbyggingu og framkvæmdum á Vestfjörðum. Það þurfi ekki að fela í sér afslátt á náttúrvernd. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Hafdís segir það gott að fóllk sé að berjast fyrir náttúrinni og að náttúran fái að njóta vafans. Hafdís spyr þó hvenær íbúar Vestfjarða fái að njóta vafans. Hafdís segir fólka reyna að búa á Vestfjörðum og það grípi því þau tækifæri sem það sér til bjargar.
Aðkomufólk heimsækir Vestfirði í nokkra daga á ári og berst svo gegn framkvæmdum á Vestfjörðum í samgöngumálum og atvinnumálum og raforkumálum.
Aðkomufólkið fer þessu næst heim til sín í öryggið þar sem það þarf ekki að keyra malarvegi til að komast á milli staða eða glíma við rafmagsnleysi yfir vetrartímann eða skort á atvinnuuppbyggingu.
Aðkomufólkið birti svo mynd á samfélagsmiðlum af fossi sem er úr alfaraleið og vekur á því athygli að áform séu um virkjun fossins.
Hafdís spyr hvað fólk sem býr á Vestfjörðum eigi þá að gera. Fólkið á Vestfjörðum sé samt ekki að biðja um afslátt að það megi misþyrma náttúrinni.
rtá
Nánar www.ruv.is