Fjallabyggð stóð fyrir málþingi um sjókvíaeldi á Ólafsfirði í fyrri viku. Bæjarstjóri Fjallabyggðar segir það ekki hafa verið ætlunina að útiloka gagnrýni á sjókvíaeldi á málþinginu.
Engir þeirra sem voru á mælendaksrá voru mótfallnir þess háttar eldi. Veiðiréttarhafar eru meðal þeirra sem gagnrýna sjókvíaeldi.
Gunnar Ingi Birgisson er bæjarstjóri í Fjallabyggð.
RÚV segir frá þessu málþingi á heimasíðu RÚV og þar er vitnað í ummæli Gunnars Inga um að skoða megi tölur veiðiréttarhafa um þjóðhagslegan ávinning af stangveiði.
Hvað miklu er skilað af veiðiréttarhöfum til hins opinbera og hve mikið af verðmætinum rennur óskipt til veiðiréttarhafa. Vera má segir Gunnar Ingi að Fjallabyggð haldi annað málþing þegar veiðiréttarhafar eru búnir að borga skattinn.
rtá
Nánar ww.ruv.is l