Í frétt Morgunblaðsins 23.6. sl. var greint frá því að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hefðu samþykkt á aðalfundi SFS að láta gera úttekt á kostum og göllum þess að vera áfram innan vébanda Samtaka atvinnulífsins (SA).
Morgunblaðið fékk þær upplýsingar frá formönnum SAF og SA að ekki væri um alvarlegan ágreining að ræða en Útvegbændafélag Vestmannaeyja gerði tillögur um þessa úttekt.
Morgunblaðið segir að þegar tillögurnar og greinargerðir sem fylgja þeim eru skoðaðar er vart hægt að draga aðra ályktun en þá að þessi ágreiningur sé djúpstæðari en formenn SFS og SA gáfu til kynna í samtölum þeirra við Morgunblaðið.
Blaðið hefur fengið það staðfest frá félögum í SFS að svo sé.
rtá
Nánar www.mbl.is