Stjórnmálin sýna þess merki að menn hugsa nú til sveitarstjórnakosninga vorið 2018. Egill Helgason skrifar um þessi mál í Silfri Egils. Egill skrifar að staða Bjartrar framtíðar (BF) - og um leið Viðreisnar - er dálítið einkennileg.
Í skipulagsmálum sem verða líklega helsti ásteytingarsteinn í kosningunum er BF og partur af Viðreisn á sömu línu og núverandi meirihluti í Reykjavíkurborg er á. Þetta eru mál eins og þétting byggðar og Reykjavíkurflugvöll í burt og áherslur á aðra valkosti í samgöngum en einkabílinn.
Egill skrifar að stórar yfirlýsingar Bjarna Benediktssona forsætisráðherra og Jóns Gunnarssonar ráðherra samgöngumála um til dæmis flugvöllinn eru óþægilegar fyrir BF og fyrir Viðreisn.
Þessir tveir flokkar eiga nú þegar undir högg að sækja eins og skoðanakannanir sýna.
rtá
Nánar www.eyjan.pressan.is