Helsta hindrun á losun hafta

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráherra fór ítarlega yfir áform um losun fjármagnshafta í ræðu sinni á flokksþingi Framsóknarflokksins sem hófst í dag. Hann sagði hin óupp­gerðu slita­bú föllnu bank­anna vera  stærstu hindr­un­ina við los­un haft­anna.


Sig­mund­ur sagði kröf­ur í slita­bú föllnu bank­anna svo háar að erfitt væri að gera sér það í hug­ar­lund. Hér væru gífurlegar upphæðir undir.  Sagði hann að ef sú upp­hæð væri ávöxtuð væri hægt að halda Ólymp­íu­leika, bara fyr­ir vext­ina, á fjög­urra ára fresti út í hið óend­an­lega. „Menn leggja ým­is­legt á sig fyr­ir slík verðmæti,“ sagði Sigmundur samkvæmt frétt á mbl.is.


Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráherra, gerir losun haftanna að umræðuefni í pistli sínum hér á hringbraut.is fyrr í dag.  Hann segir:


„Ríkisstjórnin og Seðlabankinn hafa glímt við tvö viðfangsefni á þessu sviði. Annað er hvernig slíta megi þrotabúum gömlu bankanna. Það er glíma við fortíðardraug.  Hitt er að koma fram með skýra stefnu um stjórn peningamála eftir höft. Það er sú framtíðarsýn sem atvinnulífið og launafólk hefur kallað eftir í full tvö ár.


Glíman við afturgöngur liðinnar tíðar er að mestu tæknilegt úrlausnarefni. Að sönnu mjög stórt og vandasamt en ekki sérlega flókið pólitískt. Lausnin er þó langt á eftir áætlun. En hitt sem ræður afkomu fyrirtækja og kjörum launafólks í framtíðinni kemur fram í þeirri pólitík hvernig ríkisstjórnin ætlar að tryggja frjáls viðskipti, stöðugleika og samkeppnishæfa vexti þegar tæknilegu málin eru frá. Það er snúið verkefni sem kallar á pólitíska umræðu.  


Ríkisstjórnin kaus að sveipa bæði þessi viðfangsefni algjörri leynd. Það er um sumt skiljanlegt að því er varðar tæknilegar lausnir á fortíðarvandanum. Erfiðara er að skilja hvers vegna leynd hefur ríkt um hitt eftir hvaða leiðum á að uppfylla loforðið um frjáls viðskipti og stöðugleika með krónu þegar slitabúin eru úr sögunni og höftin horfin.“


Það er spurning hvort Sigmundur Davíð hafi nú náð að svipta hulunni af framtíðarsýn flokksins og ríkisstjórnar sinnar.