Um breytingar í sjávarútvegi

Kjarninn er fjölmiðill sem var stofnaður árið 2013 og heldur hann úti vef sem er heimahöfn Kjarnans. Í gær birti Kjarninn aðsenda grein frá Þorsteini Pálssyni. Hann er formaður þeirra nefndar sem á að leita að sátt um fiskveiðiauðlindina.

Þar segir Þorsteinn Viðreisn og Bjarta framtíð hafa náð að koma stórum málum á dagskrá í stjórnmálum. Með hæfilegri einföldun hafi Sjálfstæðisflokkurinn einungis farið fram á skattalækkanir og annars óbreytt ástand í öllum málum í stjórnarmyndunarviðræðum.

Grein Þorsteins frá í gær gefur Svandísi Svavarsdóttur tilefni til að svara grein Þorsteins. Svandís á sæti í nefndinni sem Þorsteinn gengir formennsku í og gagnrýnir hún Þorstein fyrir að veitast í greinini að flokkum sem eiga sæti í sáttanefnd um sjávarútvegsmál og þá einkum þegar Þorsteinn spyr hvort tilgangur þessarar nefndar sé að skerpa línur í átökum milli stjórnarflokka. 

Þorstenn skrifar að VG - sem er flokkur Svandísar - hefur staðið fast eða jafnvel fastar gegn kerfisbreytingum en Sjálfstæðisflokkurinn. Svandís skrifar að þegar Þorsteinn veitist með þessum hætti að VG þá er ljóst að að eitthvað allt annað en samstaða vakir fyrir Þorsteini innan nefndar sjávarútvegráðaherra. Nefndin skal gera tillögur sem geta orðið grundvöllur að þverpólitískri og víðtækri sátt í samfélaginu um sjávarútveginn.

Svona er ekki unnið að því að skapa sátt skrifar Svandís. Þvert á móti sé markmiðið að skapa forsendur fyrir sundrungu. Svo mikið er víst skrifar Svandís að árásargreinar á aðra stjórnarflokka leysa ekki þann pólitíska vanda sem sjávarútveguirnn á við að glíma.

rtá

Nánar www.kjarninn.is