Írafár eða sannyrði?

Vísindamenn sem gert hafa athugasemdir við laxeldi í sjó hafa verið áreittir og baktalaðir og beittir þrýstingi. Sumir vísindamenn hafa þess vegna gefist upp. Þetta og  fleira kemur fram í greinaflokki í norsku blaði sem Fréttablaðið vísar til.

Norska blaðið er dagblaðið Morgenbladet. Þar greina um tuttugu vísindamenn frá árekstrum sínum við þá sem hafa hagsmuna að gæta í laxeldi í sjó. Í Moregenbladet kemur fram að í sveitarfélögum við norsku sjávarsíðuna sem áður börðust í bökkum séu nú byggðar hallir og keyptir sportbílar fyrir milljónirnar sem laxeldið gefur af sér. Blaðið bendir á að norskir stjórnmálamenn sem marki stefnuna um laxeldi í sjó eigi hlutabréf í laxeldi fyrirtækjunum.   

rtá

Nánar www.frettabladid.is  www.morgenbladet.no