Stórfyrirtækið Amazon er að kaupa bandarísku matvælaverslunarkeðjuna Whole Foods. Íslenskir bændur þekkja Whole Foods af góðu einu. Þar hefur m.a. verið selt af og til gegnum tíðina íslenskt lambakjöt og skyr og smjör og fleira.
Kaupverð er sagt 1.370 milljarðar íslenskra króna eða 13,7 milljarðar dollara. Amazon mun reka Whole Foods með óbreyttu sniði. Whole Foods var stofnað árið 1978 og er sagt vera með 27% markaðshlutdeild meðal hágæða matvælaverslana í Bandaríkjunum. Frá þessu er sagt í Bændablaðinu.
rtá