Alls hafa 536 bátar greidd leyfi til strandveiða á yfirstandandi vertíð en leyfin voru 619 í fyrra. Heildarafli strandveiðibáta í maí var 2.119 tonn. Meðalaflinn á yfistandandandi vertíð er því 601 kíló. Það er nokkuð minni meðalafli en var í fyrra.
Á tímabilinu maí - júní - júlí og ágúst er heimilt að veiða á handfæri allt að 9.200 tonn af óslægðum botnfiski á strandveiðum. Þessi afli reiknast ekki til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra báta sem stunbda þessar veiðar.
Fái bátur leyfi til strandveiða falla úr gildi öll önnur veiðileyfi sem báturinn kann að hafa innan íslenskrar efnahagslögsögu. Landinu er skipt í fjögur veiðisvæði.
Bátar hafa leyfi til strandveiða þar sem skráð er heimilisfesti útgerðar bátsins. Aðeins má landa afla bátsins þar sem heimilsfesti er.
Landsamband smábátaeigenda gefur út félagsblaðið BRIMFAXI og þar kemur fram það sjónarmið að öflugt strandveiðikerfi sé nauðsynlegur hlekkur í byggðafestu á Íslandi.
rtá
Nánar www.smabatar.is